Blikabúðin

Spurt og svarað

Afhending

Hægt er að velja um tvo afhendingarmáta:

- Sækja í Blikabúðinni í Fífunni á opnunartíma

- Fá afhent í gegnum Dropp

Eftir að vara hefur verið pöntuð í vefverslun Blikabúðarinnar fær kaupandi tölvupóst með staðfestingu á pöntuninni. Þegar varan er tilbúin til afhendingar berst annar tölvupóstur þar sem kemur fram hvort hægt sé að sækja vöruna eða hún sé tilbúin til afhendingar hjá Dropp.

Hvenær er pöntunin mín tilbúin?

Pantanir eru að jafnaði tilbúnar til afhendingar næsta virka dag.

Sé valið að láta merkja fatnað með númeri og/eða nafni þá geta bæst við allt að 5 virkir dagar.

Get ég látið merkja treyjur?

Já að sjálfsögðu!

Þú velur treyju hér í vefverslun Blikabúðarinnar, og setur þar inn nafn og númer eins og þú vilt að það birtist á treyjunni.

Er hægt að fá vörur sendar heim?

Að svo stöddu er aðeins hægt að sækja pantanir í Blikabúðina í Fífunni.

Innan skamms munum við bjóða upp á heimsendingu.

Hvernig get ég haft samband?

Þú getur komið við í Blikabúðinni í Fífunni, eða sent okkur línu á verslun@breidablik.is